á dagamína drifið

04.01.2007 19:32:36 / edgarclover

Ekki eins og ég hélt...

Í gær hitti ég Hrönn aftur í World Class og ég var eitthvað að kveinka mér í hægri löpp frá miðju. Hún mælti með því að ég færi í göngugreiningu í Flexor sem ég gerði í dag. Þar kom í ljós að ég er með rammskakka mjöðm, önnur löppin er styttri en hin og er með hryggskekkju. Ég er semsagt á leið til kírópraktors eða sjúkraþjálfara að láta meta hvað hægt er að gera í stöðunni. Þetta batteri er semsagt miklu dýrar heldur en ég gerði ráð fyrir í fyrstu. Það er ekki nóg að borga áskrift í eitt ár og byrja bara að hlaupa. Nei, það þarf að borga 3300 kr. í göngugreiningu, 10.000 + fyrir alvöru íþróttaskó (ég þori ekki að gefa upp nákvæma tölu af ótta við tengdó) , innlegg sem á eftir að kosta 5.000+, kírópraktor o.fl, o.fl. Félagar úr klúbbi bakmeiðsla taka mér vonandi fagnandi, nefni engin nöfn, en ég veit að ein býr með besta vini mínum í los angeles, og önnur á háaleitisbraut. Semsagt, startkostnaður við líkamsrækt er allavega 50-60.000!!! Annars gekk vel í dag. Við Guðrún fórum að hlaupa, hjóla og tókum efri part. Ég bjó til orkuríkasta morgunmat sem ég hef á ævinni fengið með leiðsögn ömmu minnar í sveitinni, eins konar samblanda hafragrauts og kjötsúpu, mínus kjötið. Síðan á að sjálfsögðu að fara í ræktina á morgun og markmiðið er að vakna fyrir hádegi. Hátíðirnar eru búnar að vera góðar við okkur fjölskylduna.

Wish me luck! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 22:57:41 / edgarclover

bara byrjunin

hallo er að byrja  á þessu í fyrsta  skipti er  lesblindur ,þannig takið viljann fyrir verkið. Ég meina það er örugglega helmingur þjóðarinnar með þessa fötlun t,d Bubbi Morteins.

Ég er á öðrum degi á áramóta heiti mínu,ég er sem sagt í  likamsrækt ,og hef ekki borðað né drukkið neitt óhollt  í tvo daga bara kj bringur og salat og vatn. Ég veit ekki hvað ég á eftir að halda þessu lengi úti en við bara sjáum hvað verður úr þessu.

Ég hef öruglega keypt mér fjögur kort og ég er viss um að ég hef farið 7 sinnum samtals í ræktina með þessum tvemur sem ég hef nú þegar nýtt mér.Ég hef umgengist ákveðna aðila sem hafa verið að pressa á mig örugglega í tvö ár og maður var orðinn ansi þreyttur á öllu þessu flexi hjá þeim,þannig að ég ætla bara að flexa til baka með þessu framtaki mínu,


» 3 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg